Lögreglumaðurinn var skotinn í Biskopsgården í Hisingen í Gautaborg seint á miðvikudagskvöldið. Þar stóð hann ásamt öðrum lögreglumanni og var að ræða við fólk. Skotið var fyrirvaralaust á manninn. Hann lést af völdum sára sinna á sjúkrahúsi.
Morðið hefur vakið upp heitar umræður í Svíþjóð um afbrot og málefni innflytjenda en glæpagengi, sem mörg eru gengi innflytjenda, hafa lengi barist á banaspjótum og má segja að það sé vikulegur viðburður að fólk sé skotið til bana vegna átaka þessara gengja.
Ulrika Åberg, saksóknari, sagðist ekki vilja tjá sig neitt um málið en gæsluvarðhaldskrafan var tekin til meðferðar fyrir luktum dyrum af ótta við að pilturinn og fjölskylda hans verði beitt ofbeldi. Åberg sagði að málið tengist átökum og deilum í Biskopsgården. Ættingjum piltins hafi verið hótað og það sé reynsla lögreglunnar af málum í hverfinu að nánir ættingjar séu beittir ofbeldi vegna tengsla sinna við ákveðna aðila.
Búið er að flytja ættingja piltsins frá Biskopgården.
Pilturinn var handtekinn síðdegis á föstudaginn eftir viðamikla rannsókn og yfirheyrslur en þá var búið að yfirheyra um 200 manns.
Ekki er vitað af hverju lögreglumaðurinn var skotinn en lögreglan telur líklegt að morðið tengist átökum glæpagengja í hverfinu. Sænskir fjölmiðlar hafa bent á að langvarandi deilur og átök hafi staðið yfir á milli gengja í suður- og norðurhluta Biskopsgården en hverfið hefur lengi glímt við ofbeldisverk og átök glæpagengja.
Einnig hefur komið fram að pilturinn hafi í ársbyrjun 2020 verið dæmdur til eins árs meðferðar eftir að hann reyndi að drepa mann í Gautaborg.