The Guardian skýrir frá þessu. Hefur miðillinn eftir Len Ramirez, eiganda Ramirez Rattlesnake Removal Company í Kaliforníu, að hann hafi aldrei haft eins mikið að gera og nú. Hann sagði skröltorma vera alls staðar þessa dagana, á sólpöllum fólks, í pottaplöntum og undir leikföngum barna. „Ég hef aldrei haft eins mikið að gera og núna. Tilkynningar berast alls staðar að úr ríkinu,“ er haft eftir honum.
Hann aðstoðar fólk við að losna við skröltorma með því að fanga þá og flytja langt út fyrir bæjarmörkin þar sem þeim er sleppt. Hann hefur starfað við þetta síðan 1985 þegar hann stofnaði fyrirtækið. Hann sagðist áður hafa upplifað að tilkynningum um skröltorma fjölgi mikið en þó ekki eins mikið og nú. Hann sagðist ekki telja að dýrunum hafi fjölgað, þau sæki bara í vaxandi mæli inn í mannabyggðir til að leita skjóls frá hækkandi hita og þurrkum.
En það eru ekki bara skröltormar sem leita í vaxandi mæli inn í íbúðarhverfi, þar gera aðrar tegundir sem reyna að laga sig að breyttu veðurfari einnig. Þar má nefna birni sem eru farnir að leita lengra inn í íbúðarhverfi en áður. „Bjarnarstofninn er að stækka svæðið sitt svo birnir eru farnir að sjást á svæðum þar sem þeir hafa aldrei áður sést,“ sagði Rebecca Barboza, líffræðingur, í samtali við ABC News nýlega.
Minni dýr og skordýr eru einnig farin að færa sig nær mannabyggðum í leit að vatni og sum þeirra eru ekki ákjósanlegir gestir því þau geta valdið miklu tjóni.