Í heildina þarf að flytja allt að 50.000 manns á brott að mati Repúblikana. Bandarískir embættismenn skýrðu nýlega frá þessu.
Ástæðan fyrir brottflutningnum er að óttast er um öryggi túlkanna og fjölskyldna þeirra þegar Bandaríkjamenn hverfa á brott enda ekki vel séð hjá Talibönum að fólk hafi starfað með bandaríska hernum.
„Þeir, sem hafa aðstoðað okkur, verða ekki skildir eftir. Þeir eru velkomnir hér eins og allir aðrir sem hafa hætt lífi sínu við að hjálpa okkur,“ sagði Joe Biden, forseti, um málið.
Mike McCaul, leiðtogi Repúblikana í utanríkisnefnd fulltrúadeildarinnar, telur að hugsanlega séu það um 50.000 manns sem þarf að flytja á brott. 9.000 Afganar hafa nú þegar sótt um vegabréfsáritun fyrir sig og fjölskyldur sínar. Útilokað er að hægt verði að afgreiða umsóknir allra áður en bandaríski herinn heldur á brott frá Afganistan og því er nú íhugað að flytja fólk til Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Bahrain, Katar og Kúveit.
Um helmingur bandarískra hermanna hefur nú verið fluttur frá Afganistan en brottflutningnum á að vera lokið fyrir 11. september. Reiknað er með að 600-700 hermenn verði eftir í landinu til að tryggja öryggi bandarískra stjórnarerindreka.