fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Óhugnanleg skilaboð voru skrifuð á bringu hins myrta

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 26. júlí 2021 05:58

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á mánudag í síðustu viku fann lögreglan í New York lík hins áttræða Robert Raynor á Staten Island. Hann hafði verið sleginn í höfuðið og líkamann og lést af völdum áverka sinna.

New York Post skýrir frá þessu. Fram kemur að Raynor hafi verið ber að ofan og því hafi óhugnanlegur texti, sem hafði verið skrifaður á bringu hans, ekki farið fram hjá neinum en þar stóð: „Ég fitla við litlar stúlkur.“ Auk þess á hafði verið skrifað á maga hans: „Ég tek dúkkur með inn í herbergi eins til fimm ára gamalla stúlkna.“ Á öðrum fæti hans stóð: „Ég fitla.“

Enginn er grunaður um morðið og lögreglan veit ekki af hverju Raynor var myrtur. Shakera McFadden, 32 ára dóttir Raynor, sagðist í samtali við New York Post vera í miklu áfalli vegna morðsins. Hún sagðist heldur ekki skilja skilaboðin sem morðinginn hafði skrifað á líkið. „Faðir minn snerti aldrei neinn. Hann snerti aldrei litlar stúlkur,“ sagði hún og bætti við að hann hafi verið krabbameinssjúklingur og hafi átt erfitt með að hreyfa sig. „Hann gat varla lyft handleggjum og fótleggjum. Hann gat eiginlega ekki gert neitt,“ sagði hún.

Lík Raynor fannst klukkan 09.30 síðasta mánudag í íbúð hans á Staten Island. Hann var bara í buxum og var með fjölda áverka og glóðarauga. Nágranni hans segist hafa heyrt mikinn hávaða frá íbúðinni nokkrum klukkustundum áður en lík Raynor fannst, hugsanlega hafi verið um slagsmál að ræða. Raynor hafði margoft komið við sögu lögreglunnar en hann hafði verið handtekinn 24 sinnum. Þar á meðal fyrir vörslu fíkniefna og fyrir að hafa beitt unnustur sínar ofbeldi. En afbrot hans tengjast á engan hátt barnaníði og nágranna hans grunaði aldrei að hann stundaði neitt slíkt. „Hann fór varla út úr íbúðinni og þegar hann gerði það gat hann varla gengið,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga