Íranska fréttastofan Fars skýrir frá þessu. Í Íran eru möguleikar ógifts fólks af báðum kynjum til að komast í samband við hvert annað ekki eins og í flestum öðrum löndum. Ástæðan er hin ströngu íslömsku lög sem gilda í landinu.
En tíðarandinn hefur breyst í landinu og margt ungt fólk hefur ekki áhuga á að ganga í hjónaband sem foreldrar þeirra og fjölskylda hafa skipulagt og vill ráða því sjálft hverjum eða hverri það gengur í hjónaband með.
Appið heitir Hamdam (sem þýðir maki) og í því er ungu einhleypu fólki gefin góð ráð í makaleitinni og notendurnir geta tekið sálfræðipróf sem appið notar síðan til að koma með tillögur um hverjir passa saman.
Það er ekki af góðmennsku einni saman sem klerkastjórnin heimilar að appið sé sett á markað. Það eru áhyggjur af fæðingartíðninni sem eru drifkrafturinn en fæðingartíðnin hefur lækkað um 25% á síðustu fjórum árum og nú eignast hver írönsk kona 1,7 börn að meðaltali. Þetta hefur vakið áhyggjur um að eftir um 20 ár verði þjóðin ein sú elsta í heimi.