Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að Wolters hafi sagt að lögreglan hafi lengi verið að rannsaka hugsanleg tengsl Christian B. við málið og hafi vitað mikið um hann áður en hún sneri sér til almennings og bað um aðstoð.
Fyrir ári síðan tilkynntu Wolters og Scotland Yard að Christian B. væri grunaður í málinu og biðluðu til almennings um upplýsingar um ferðir hans og lífsstíl. Hann var ekki nefndur með nafni en fljótlega kom í ljós að um Christian B. væri að ræða en hann er 43 ára og hefur ítrekað komist í kast við lögin fyrir barnaníð og önnur ofbeldisverk.
Wolters sagði að á því ári sem liðið er hafi lögreglan aflað enn frekari gagna en sagðist ekki geta skýrt frá hver þau eru. Hann sagði að rannsókn málsins miði áfram en lögreglan hafi þó ekki enn nægilega sterk sönnunargögn til að geta ákært Christian B. Wolters hefur áður sagt að þýska lögreglan sé sannfærð um að Christian B. hafi myrt Madeleine.
Christian B. bjó í Portúgal 2007 þegar Madeleine, sem var þá þriggja ára, var numin á brott úr sumarleyfisíbúð fjölskyldu hennar í Algarve.
Vitað er að Christian B. var í Algarve þegar Madeleine var rænt, hann bjó á svæðinu og nóttina sem hún hvarf var farsími hans notaður nærri hótelinu þar sem McCann-fjölskyldan bjó. Daginn eftir umskráði hann einn af bílum sínum. Hann er sagður hafa játað fyrir vini sínum að hann hafi numið Madeleine á brott. Vinurinn skýrði Scotland Yard frá þessu eftir að hann var handtekinn í Grikklandi.