CNN segir að í minnisblaði frá Brady Byrnes, framkvæmdastjóra þjónustusviðs American Airlines, komi fram að flugliðar séu um borð í vélunum til að tryggja öryggi farþega, veita þeim öryggiskennd, svara spurningum og til að framfylgja reglum, til dæmis um notkun andlitsgríma. Einnig kemur fram í minnisblaðinu að síðustu vikuna hafi mjög erfið mál komið upp í flugvélum og það sé ljóst að American Airlines muni ekki líða árásir á starfsfólk eða illa meðferð á því.
American Airlines hætti sölu áfengis í mars á síðasta ári til að lágmarka samskipti farþega og áhafnar og var það heimsfaraldurinn sem lá að baki þessari ákvörðun. Nú ætlar flugfélagið að framlengja áfengissölubannið til 13. september en þá rennur kvöð um notkun andlitsgríma í flugvélum út.
Fyrir um viku var ráðist á flugliða hjá Southwest og honum veittir alvarlegir áverkar í innanlandsflugi í Bandaríkjunum. Í kjölfarið ákvað Southwest að hætta sölu áfengis tímabundið á meðan verið er að meta hvort henni verður haldið áfram.