Lapid er formaður miðjuflokksins Yesh Atid. Hann myndar ríkisstjórn með Yamina, sem er hægriflokkur. Leiðtogi Yamina er Naftali Bennet. Samkvæmt samkomulagi flokkanna mun Bennet gegna embætti forsætisráðherra fyrstu tvö ár kjörtímabilsins en Lapid þau tvö síðari.
Fréttir höfðu áður borist um að Lapid hefði tekist að fá Bennet til samstarfs með því bjóða honum að deila embætti forsætisráðherra á kjörtímabilinu.
Ljóst var að ríkisstjórnarmyndunin tækist skömmu fyrir miðnætti þegar Mansour Abbas, leiðtogi arabísk-ísraleska flokksins Raam tilkynnti að hann myndi styðja ríkisstjórnina.
Ef þingið samþykkir ríkisstjórnina þá verður Raam fyrsti arabíski flokkurinn sem á aðild að ríkisstjórn í Ísrael.
The Times of Israel segir að ekki sé þó alveg öruggt að ríkisstjórnin verði samþykkt af meirihluta þingmanna því í Yamina flokknum er Nir Orbach sem hefur hótað að greiða atkvæði gegn stjórninni en það myndi hafa í för með sér að hún nýtur ekki meirihlutastuðnings. 120 þingmenn sitja í Knesset. 61 úr verðandi stjórnarflokkum og 59 úr stjórnarandstöðuflokkunum. Það þarf því ekki nema einn þingmaður að svíkja lit hjá stjórnarflokkunum verðandi og þá er meirihluti þeirra fallinn.
Nýja ríkisstjórnin er samsteypustjórn ólíkra flokka á vinstri og hægri vængnum og miðjunni. Þeir eiga það sameiginlegt að vilja koma Netanyahu frá völdum.