The Washington Post skýrir frá þessu. Sá sem beindi byssunni að Laura heitir Oen Evan Nicholson og er hann þrítugur. Síðasta föstudag var handtökuskipun gefin út á hendur honum í fjölmörgum ríkjum Bandaríkjanna. Hann var grunaður um að hafa myrt föður sinn í hjólhýsi við Mill Casino. Hann stal síðan bíl föður sína og lagði á flótta. Á leiðinni út af tjaldsvæðinu ók hann á eldri hjón. Anthony Oyster, 74 ára, lést samstundis en eiginkona hans liggur þungt haldin á sjúkrahúsi.
Frá tjaldsvæðinu ók Oen til Herbal Choices Marijuana dvalarstaðarins en þar er kannabis selt. Þar skaut hann Jennifer L. Davidsen, 30 ára, til bana. Lögreglan veit ekki hvort þau tengdust eða af hverju Oen skaut hana.
Þegar hér var komið við sögu var lögreglan í Oregon búin að lýsa eftir honum en hún hafði ekki hugmynd um hvert hann ætlaði og hófst því mikil leit að honum.
Vinnufélagar Laura tilkynntu um hvarf hennar daginn eftir að hún hvarf en hún hafði ekki skilað sér aftur og svaraði ekki í símann sinn.
Klukkan sex að morgni síðasta sunnudags gekk Oen inn á lögreglustöð í Wisconsin og gaf sig fram við lögregluna. Skömmu síðar fannst Laura og amaði ekkert að henni líkamlega en að vonum hafði ferðin tekið á hana andlega.
„Hún taldi hann á að gefa sig fram,“ hefur KEZI eftir Dennis Johnson, föður hennar en þá höfðu þau lagt um 3.000 kílómetra að baki.
Oen er í gæsluvarðhaldi og á yfir höfði sér ákæru fyrir þrjú morð, tilraun til manndráps, líkamsárás, mannrán og fleira.