CNBC segir að á síðasta ári hafi bandarísk fyrirtæki greitt sem nemur rúmlega 40 milljörðum íslenskra króna til tölvuþrjóta sem höfðu gert árásir á þau. Greiðslurnar fóru fram í rafmynt. Aukning á milli ára var 311%.
„Gíslatöku“ árásir virka þannig að tölvuþrjótum tekst að komast inn í tölvukerfi fyrirtækja og stofnana og læsa þeim þannig að fyrirtækin og stofnanirnar geta ekki notað þau. Þeir krefjast síðan greiðslu fyrir að opna aftur fyrir aðgang að þeim.
Þetta er útbreitt vandamál í Bandaríkjunum, meðal annars vegna þess að innviðir eru veikburða hvað þetta varðar sem og aðgerðir yfirvalda. Til dæmis hefur tölvuþrjótum tekist að brjótast inn í tölvukerfi löggæslustofnana og taka gögn þeirra í gíslingu.
Eitt umtalaðasta málið að undanförnu er þegar rússneskir tölvuþrjótar lömuðu olíudreifingu á austurströndinni eða allt þar til þeir fengu fimm milljónir dollara greidda í lausnargjald.
CNBC segir að þrátt fyrir að árásum af þessu tagi fjölgi þá séu það aðeins nokkrir vel skipulagðir hópar tölvuþrjóta sem standa á bak við þær.