Þann 23. mars á síðasta ári lenti Chris Dennis, sem er flugmaður hjá Delta, einni véla félagsins á vellinum. Hann reiknaði með að vélin yrði sótt eftir 14 daga og tekin í notkun á nýjan leik. Hann ákvað að skrifa miða og skilja eftir í flugstjórnarklefanum fyrir flugmennina sem myndu sækja vélina.
„Hæ flugmenn, það er 23. mars og við vorum að koma frá Minneapolis–St. Paul. Mikið áfall að sjá svona mikið af flota okkar hér í eyðimörkinni. Ef þú ert kominn til að sækja vélina þá hlýtur að vera farið að birta til. Ótrúlegt hversu hratt þetta gerðist. Ég óska ykkur góðrar ferðar þegar þið takið vélina úr geymslu,“ skrifaði hann.
Vélin var þó öllu lengur í geymslu en Chris reiknaði með því það var ekki fyrr en 1. júní síðastliðinn sem Nick Perez, flugmaður, fann miðann að því er segir á heimasíðu Delta. Þá voru 435 dagar liðnir frá því að Chris skildi hann eftir.