Dagurinn er þekktur sem Juneteenth í Bandaríkjunum og telja margir hann vera „hinn sjálfstæðisdag þjóðarinnar“.
Með endalokum þrælahaldsins losnuðu milljónir svartra úr ánauð.
Öldungadeildin samþykkti frumvarp um að gera daginn að almennum frídegi með öllum greiddum atkvæðum. Fulltrúadeild þingsins samþykkti frumvarpið síðan og í gær staðfesti Joe Biden, forseti, það og þar með varð það að lögum.
Dagurinn var áður frídagur í 47 ríkjum en verður nú tólfti frídagurinn á landsvísu.
Í kjölfar staðfestingar Biden á lögunum hófst mikið kapphlaup í nokkrum ríkjum við að gefa opinberum starfsmönnum frí í vinnunni í dag því 19. júní ber upp á laugardag að þessu sinni. Vildu ríkisstjórar ríkjanna að opinberir starfsmenn fengju aukafrídag og hófust því handa við að gera þeim það kleift. Alríkisstjórnin tilkynnti að flestir starfsmenn alríkisins eigi að eiga frí í dag og bað yfirmenn stofnana um að sjá til þess að svo verði.
Demókratar reyndu að fá frumvarpið samþykkt á síðasta ári í kjölfar mótmæla Black Lives Matters en Repúblikaninn Ron Johnson stóð í vegi fyrir að það tækist. Hann tilkynnti á þriðjudaginn að hann hefði látið af andstöðu sinni við frumvarpið og þá rann það átakalaust í gegnum öldungadeildina.