BBC skýrir frá þessu. Hefur BBC eftir Yoon Miso að þegar hún var 11 ára hafi hún í fyrsta sinn séð mann tekinn af lífi. Ástæðan var að hann var með suðurkóreskar bókmenntir í fórum sínum. „Allir sem bjuggu nærri honum voru neyddir til að vera viðstaddir aftökuna. Norðurkóresku varðmennirnir vildu vera vissir um að allir skildu að refsingin fyrir að smygla inn í landið var dauðadómur. Ef maður vék sér undan að vera viðstaddur var maður ásakaður um landráð,“ sagði Yoon Miso sem býr nú í Suður-Kóreu.
„Það var bundið fyrir augu hans. Bindið var gegnblautt af tárum. Þetta var mikið áfall fyrir mig,“ sagði hún. Manninum var stillt upp við staur og hann skotinn.
Það er svo sem ekki eins og íbúar í Norður-Kóreu eigi í miklum samskiptum við umheiminn því landið er harðlokað og lítið um erlend áhrif. Það er ekkert Internet þar, engir samfélagsmiðlar og sjónvarpsstöðvar og aðrir fjölmiðlar eru ríkisreknir.
Með nýju lögunum verður öllum sem eru með mikið magn fjölmiðlaefnis frá Suður-Kóreu, Bandaríkjunum eða Japan refsað með 15 ára vistun í þrælkunarbúðum eða dauðadómi.
Í bréfi til ungmennahreyfinga í landinu hefur Kim Jong-un fyrirskipað þeim að grípa til harkalegra aðgerða gegn „andsósíalískri hegðun ungmenna“ og segist telja að erlent slangur, hártíska og fatnaður sé „eins og eitur“.
Miðillinn NK, sem er rekinn í Suður-Kóreu, hefur eftir heimildarmönnum í Suður-Kóreu að þrír unglingar hafi verið sendir í endurmenntunarbúðir þar sem hárgreiðsla þeirra þótti of „útlend“ og fyrir að hafa brett buxnaskálmar upp fyrir ökkla.
Sérfræðingar segja að Kim reyni nú að stöðva allar fréttir erlendis frá því lífið í landinu verði sífellt erfiðara en talið er að milljónir landsmanna svelti og það kæmi sér ekki vel fyrir einræðisstjórnina að landsmenn sjái að íbúar nágrannalandanna hafa það miklu betra.