Aftonbladet segir að lögreglunni hafi borist tilkynning um að skotum hafi verið hleypt af í Hjulsta klukkan 23.53. Særður maður fannst á bifreiðastæði og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var síðar úrskurðaður látinn.
Aftonbladet hefur eftir vitni að það hafi heyrt þrjú skot og annað vitni hafði sömu sögu að segja.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en Expressen segir að skammbyssa hafi fundið í gróðri ekki langt frá morðvettvanginum. Lögreglan rannsakar nú hvort morðið tengist morði í Husby fyrr um daginn. Þar var karlmaður á fertugsaldri skotinn til bana á götu úti klukkan 15.30. Ungur maður hefur verið handtekinn í tengslum við það mál og annars er leitað.
Aftonbladet segir að maðurinn hafi verið skotinn mörgum skotum á götu úti þegar hann reyndi að flýja undan tveimur árásarmönnum sem flúðu af vettvangi á skellinöðru.