Viðurkenningin þýðir að fyrirtækið má nú nota merki drottningarinnar við markaðssetningu og á umbúðum næstu fimm árin. Þetta þykir mikill gæðastimpill í Bretlandi.
Þetta er í annað sinn sem Lovehoney fær þessi verðlaun en fyrirtækið fékk þau einnig fyrir fimm árum.
Fyrirtækið nýtur sérstaklega mikillar velgengni vegna einkaréttar á framleiðslu og sölu leiktækja sem eru kennd við „Fifty Shades of Grey“.