Samkvæmt frumvarpinu verða möguleikar fólks til að greiða atkvæði utankjörstaðar þrengdir sem og möguleikar fólks til að afhenda atkvæðaseðla sína á kjörstöðum þar sem það ekur upp að lúgu, svona svipað og á skyndibitastöðum. Einnig verður opnunartími kjörstaða styttur á sjálfan kjördaginn.
Frumvarpið var sent til beggja deilda þings Texas á laugardaginn en Repúblikanar eru í meirihluta í báðum deildum. Greg Abbott, ríkisstjóri, hefur gefið í skyn að hann muni greiða atkvæði með frumvarpinu.
Stuðningsmenn frumvarpsins segja að það muni gera kosningar í framtíðinni mun öruggari en gagnrýnendur segja að því sé ætlað að gera svörtu fólki og fólki frá Suður-Ameríku erfiðara fyrir við að kjósa en þetta eru þjóðfélagshópar sem eru almennt líklegri til að styðja Demókrata en Repúblikana.
Joe Biden sagði um helgina að frumvarpið væri „ólýðræðislegt“. „Þetta er hluti af árásum sem lýðræðið hefur sætt allt of oft á þessu ári. Oft er árásunum beint að svörtum Bandaríkjamönnum. Þetta er rangt og óamerískt. Á 21. öldinni eigum við að gera fólki auðveldara fyrir að kjósa en ekki erfiðara,“ segir í yfirlýsingu frá Biden.
Frumvarpið var tekið til afgreiðslu á þinginu í Texas í gær en Demókratar komu í veg fyrir að það kæmist í gegn en samþykkja þurfti það fyrir miðnætti þar sem um síðasta dag þingsins var að ræða að sinni. Þingmenn Demókrata yfirgáfu allir sem einn þinghúsið seint í gærkvöldi og eftir sátu þingmenn Repúblikana sem gátu ekki greitt atkvæði um frumvarpið því ekki voru nægilega margir þingmenn viðstaddir til að atkvæðagreiðsla gæti talist gild en 100 þingmenn verða að vera til staðar til að atkvæðagreiðsla geti farið fram.
Repúblikanar í Texas vilja með frumvarpinu feta í fótspor Flórída, Georgíu og annarra ríkja, þar sem þeir fara með völd, og taka undir staðlausar fullyrðingar Donald Trump, fyrrum forseta, um víðtækt kosningasvindl í forsetakosningunum í nóvember. Í nokkrum ríkjum hafa lög nú þegar verið samþykkt sem þrengja að möguleikum minnihlutahópa til að greiða atkvæði í kosningum og dylst fáum að markmiðið er að halda kjósendum Demókrata frá kjörstöðum.