fbpx
Miðvikudagur 09.apríl 2025
Pressan

Íbúarnir sáu nornir og tröll – Nú er skýringin fundin

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 30. maí 2021 19:00

Eyjaskeggjar sáu meðal annars nornir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir um 100 árum byrjuðu undarlegir hlutir að eiga sér stað á eldfjallaeyjunni Alicudi sem er i Miðjarðarhafinu. Frá 1903 til 1905 byrjuðu margir íbúar eyjunnar að sjá undarlega hluti en á þeim tíma bjuggu um 1.000 manns þar. Þetta hélt síðan áfram í marga áratugi. Nú er komið í ljós að það sem fólkið sá er kannski ekki eins dularfullt og talið var á sínum tíma.

Dagbladet skýrir frá þessu. Þetta hélt áfram og eyjaskeggjar héldu áfram að sjá undarlega hluti á borð við drauga, trúða og nornir. Hvort það hafi átt sinn þátt í að íbúum eyjunnar hefur fækkað niður í um 100 í dag er önnur saga.

Nornir voru það sem fólk sá oftast og sjást þær jafnvel enn í dag. Þær voru bæði góðar og illar. Þær slæmu voru sagðar reyna að sökkva bátum og leggja álög á fólk. CNN segir að þær hafi einnig breytt körlum í asna (það er að segja dýrið asna!)

Þar sem svo margir íbúar skýrðu frá upplifunum á borð við þessar þá var þetta farið að hljóma næstum því trúlegt. En seint og um síðir fannst skýringin á þessu. Hún er eitrun. Talið er að íbúarnir hafi andað að sér sveppagróum, sem kallast mjölsveppir, sem vaxa á korni á ökrum á eyjunni. Í þessum gróum eru sömu efni og eru í ofskynjunarlyfinu LSD. Eyjaskeggjar hafa því einfaldlega verið undir áhrifum ofskynjunarefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu

Trump sagður ætla að halda upp á afmælisdaginn með stærðarinnar sýningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Veiran sjaldgæfa sem dró eiginkonu Gene Hackman drepur þrjá til viðbótar

Veiran sjaldgæfa sem dró eiginkonu Gene Hackman drepur þrjá til viðbótar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á þessum tveimur aldursskeiðum eldist líkaminn mjög hratt

Á þessum tveimur aldursskeiðum eldist líkaminn mjög hratt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að halda gulrótum ferskum mánuðum saman

Svona er hægt að halda gulrótum ferskum mánuðum saman
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum embættismenn og bandamenn Trump orðlausir yfir myndbandi sem forsetinn deildi – „Hann er að gera það viljandi“

Fyrrum embættismenn og bandamenn Trump orðlausir yfir myndbandi sem forsetinn deildi – „Hann er að gera það viljandi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í litlu lögregluliði – Fjögur sjálfsvíg á sex vikum

Harmleikur í litlu lögregluliði – Fjögur sjálfsvíg á sex vikum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt

Ætlar þú að fá þér hvolp? Þetta þarftu þá að hafa klárt