Hótunarbréf, þar sem krafa um lausnargjald var sett fram, fannst á heimili Hagen-hjónanna eftir hvarf Anne-Elisabeth. Í því var einnig lykilorð sem Tom átti að nota til að eiga í samskiptum við mannræningjana. Þetta lykilorð var notað fjórum mánuðum áður á heimasíðunni pasted.co og þar var einnig búið að skrifa inn vefslóðir tveggja heimasíðna fyrir rafmyntir. Lykilorðið sem var notað var „anne“.
Þessu skýrði lögreglan frá í vikunni í þeirri von að það myndi verða til þess að almenningur gæti veitt einhverjar vísbendingar í málinu. Í gær skýrði lögreglan frá því að henni hefðu borist um 80 ábendingar í kjölfarið og að sumar þeirra væru svo „nákvæmar og mikilvægar“ að þær verði rannsakaðar ofan í kjölinn.
„Ábendingarnar snúast bæði um nafngreinda einstaklinga og ákveðna hópa. Margar ábendinganna snúast einnig um ákveðin einkenni og hvernig er hægt að lýsa þeim nánar,“ hefur VG eftir Gjermund Hanssen, yfirlögregluþjóni.
Flest bendir til að sá eða þeir sem skipulögðu ránið á Anne-Elisabeth hafi búið yfir mikilli þekkingu á rafmyntum og ýmsu þeim tengdu. Af þessum sökum sneri lögreglan sér til almennings og bað um aðstoð, hún beindi ákalli sínu sérstaklega til þeirra sem búa yfir tækniþekkingu og þekkingu á rafmyntum.
Hanssen sagði í samtali við Norska ríkisútvarpið að í heildina skeri uppbygging greiðsluleiðanna, sem rafmyntin átti að fara um, sig úr því sem venja var 2018. Lögreglan hefur einnig skýrt frá því að nokkrir rafmyntareikningar hafi verið stofnaðir undir fölsku nafni en það var selt á „djúpnetinu“ sem er almennt ekki aðgengilegt fyrir venjulega netnotendur. Af þeim sökum grunar lögregluna að gerendurnir búi yfir mikilli þekkingu og getu á þessu sviði. Þetta byggir hún meðal annars á að árið 2018 þekktu fáir rafmyntina Dash. Það að gerendurnir hafi búið yfir þeirri þekkingu og verið viljugir til að ræna Anne-Elisabeth ætti í raun að gera listann yfir grunaða stuttan. Lögreglan hefur áður skýrt frá því að hún telji að sá eða þeir sem stóðu á bak við mannránið hafi norsku að móðurmáli.