Lögreglan hefur lengi unnið út frá þeirri kenningu að Mary hafi verið eitt af mörgum fórnarlömbum raðmorðingjans Fred West. Nú hafa nýjar vendingar í málinu vakið vonir um að lögreglunni takist að leysa það. Sky News og BBC skýra frá þessu.
Nýlega fékk lögreglan ábendingu frá þáttagerðamönnum, sem vinna að gerð heimildarmyndar, um að hugsanlega hafi lík Mary verið grafið undir kaffihúsinu. Þessu til stuðnings segja þeir að myndir sýni blátt efni sem sé grafið í kjallaranum. Það er talið geta verið úr jakka Mary.
Lögreglan hóf strax vettvangsrannsókn og hefur nú ákveðið að hefja uppgröft í kjallara hússins í þeirri vona að finna líkamsleifar Mary og er reiknað með að sú vinna taki nokkrar vikur.
Í byrjun tíunda áratugarins komst upp um Fred West og ódæðisverk hans. Hann er talinn hafa myrt að minnsta kosti 12 konur. Við mörg morðanna naut hann aðstoðar eiginkonu sinnar, Rosemary West. Þau fengu bæði útrás fyrir afbrigðilegar kynhvatir sínar með þessu en þau nauðguðu konunum, pyntuðu og skáru útlimi af þeim.
Að minnsta kosti átta lík fundust grafin undir heimili hjónanna í Cromwell Street. Húsið fékk viðurnefnið „House of Horrors“ (Hryllingshúsið) í kjölfarið. Það stóð skammt frá Clean Plate Café þar sem Mary starfaði en Fred West var tíður gestur þar. Heimili West-hjónanna var rifið eftir að upp komst um ódæðisverk þeirra.
Fred West framdi sjálfsvíg í fangelsi 1995 en þá beið hann eftir að mál hans kæmi fyrir dóm. Rosemary afplánar nú lífstíðardóm fyrir aðild að morðunum.