Yfirvöld ætla greinilega ekki að láta faraldurinn fara meira úr böndunum og því hefur verið ákveðið að næstu tvær vikurnar verði menningarstofnanir og kvikmyndahús lokuð. 5 mega að hámarki koma saman innahúss og 10 utanhúss. Fólk er hvatt til að nota andlitsgrímur utanhúss, sleppa því að borða og drekka með öðru fólki og er hvatt til að halda sig heima. Í höfuðborginni Taipei er staðan metin svo alvarleg að borgin er talin á mörkum þess að grípa þurfi til enn harðari aðgerða og nær algjörrar lokunar á samfélagsstarfsemi.
Taívan hefur margoft verið hrósað fyrir góðan árangur í baráttunni við heimsfaraldurinn en þar hafa strangar reglur gilt um komur fólks til landsins, mikil áhersla hefur verið lögð á sýnatöku og smitrakningu og þungum sektum hefur verið beitt ef fólk hefur ekki virt kröfur um sóttkví og einangrun. Af þessum sökum má segja að engin bylgja faraldursins hafi skollið á eyjunni.
Vegna þess hversu fáir hafa smitast af kórónuveirunni hafa margir landsmenn valið að láta ekki bólusetja sig gegn henni. Nú hvetja yfirvöld eldri borgara til að láta bólusetja sig eins fljótt og unnt er.
Frá upphafi faraldursins hafa um 2.260 smit greinst í landinu og 142 hafa látist.