Washington Post segir að bæturnar, sem þeir fá, séu þær hæstu sem hafa verið greiddar vegna rangrar sakfellingar í Bandaríkjunum. Hvor um sig fær eina milljón dollara fyrir hvert ár sem þeir sátu saklausir í fangelsi og að auki fær hvor um sig 13 milljónir dollara að auki. Samtals eru þetta 75 milljónir dollara.
McCollum var 19 ára þegar hann var handtekinn og Brown var 15 ára. Þeir voru grunaðir um morðið á Sabrina Buie sem fannst myrt á sojabaunaakri í Red Springs í Norður-Karólínu. Bræðurnir voru ólæsir og óskrifandi. Samt sem áður voru þeir yfirheyrðir klukkustundum saman án þess að verjendur fengu að vera þeim til aðstoðar. Að lokum skrifuðu þeir undir játningar sem þeir skildu ekki. Þeir voru síðan dæmdir til dauða en dómunum var síðar breytt í lífstíðarfangelsi.
Árið 2009 uppgötvaði North Carolina Innoncence Inquiry Commission að DNA var á sígarettustubbi sem fannst á morðvettvangi. Erfðaefnið reyndist vera úr þriðja manninum sem hafði verið dæmdur fyrir nauðgun og morð sem átti sér stað aðeins mánuði eftir morðið á Buie. Málið var því tekið til meðferðar á nýjan leik og bræðrunum var sleppt úr fangelsi.
„Ég hef öðlast frelsi,“ var það eina sem McCollum sagði þegar kviðdómur í Raleigh í Norður-Karólínu tilkynnti upphæð bótanna til þeirra bræðra.