Bild segir að miklir áverkar hafi verið á fólkinu og beri þess merki að það hafi verið beitt „miklu ofbeldi“ og af þeim sökum telur lögreglan að um morð af yfirlögðu ráði hafi verið að ræða.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fjórir sjúklingar hafi fundist látnir og sá fimmti alvarlega slasaður. Fólkið lá á nokkrum sjúkrastofum á sama gangi sjúkrahússins segir einnig í tilkynningunni.
Fréttir af málinu eru enn mjög óljósar en lögreglan fékk tilkynningu um það um klukkan 21 í gærkvöldi.