Gagnrýnendur forsetans hafa sakað hann um framkvæmdagleði sem sé aðeins ætlað að verða minnisvarði um hann til allrar framtíðar. En risaverkefnin hafa almennt verið vinsæl meðal almennings en ekkert þeirra hefur þó komist í hálfkvisti við fyrirætlunina um nýja skipaskurðinn sem á að heita Istanbúlskipaskurðurinn. Hann á að tryggja siglingar á milli Svartahafs og Marmarahafs og þar með Miðjarðarhafs. „Eitt stærsta verkefni aldarinnar. Það mun verða stærra en bæði Panama- og Súesskurðirnir,“ sagði Erdogan þegar hann kynnti hugmyndina í fyrsta sinn fyrir tíu árum.
En margir gagnrýna þessar hugmynd. Umhverfisverndarsinnar segja að þetta muni menga ferskvatnsbirgðir íbúa Istanbúl en þeir eru um 15 milljónir. Ekrem Imamoglu, borgarstjóri Istanbúl og pólitískur andstæðingur Erdogan, segir hugmyndina „klikkun“ því þetta muni gera stóra hluta af Istanbúl að eyju og tefja björgunarstarf þegar öflugur jarðskjálfti, sem reiknað er með að muni ríða yfir svæðið, ríði yfir.
Aðrir velta því fyrir sér hvort Tyrkir hafi efni á svona framkvæmd í miðjum heimsfaraldri og enn aðrir spyrja sig hvort skurðurinn eigi ekki aðallega að þjóna hagsmunum vina og stuðningsmanna Erdogan.
En það sem margir hafa einnar mestar áhyggjur af er að verkefnið gæti dregið úr vægi Montreuzsamþykktarinnar frá 1936. Þetta er alþjóðleg samþykkt sem þrengir heimild annarra ríkja til að senda herskip og önnur stríðstól í gegnum Bosporussund. Ríkin verða að tilkynna Tyrkjum fyrirfram um slíkar siglingar. Margir Tyrkir telja samþykktina mikilvægt verkfæri til að koma í veg fyrir átök í heimshlutanum. Þegar tyrkneska ríkisstjórnin samþykkti áætlunina formlega fyrir nokkrum vikum sendu 100 fyrrverandi aðmírálar frá sér opið bréf þar sem þeir vöruðu við afleiðingunum. Þeir sögðu að allt það sem getur vakið upp efasemdir um Montreuxsamþykktina, sem sé mikilvæg til að tryggja fullveldi Tyrklands, eigi að forðast.
Erdogan hefur ekki tekið þessari gagnrýni vel og hefur gefið í skyn að hér sé um hluta af samsæri gegn ríkinu að ræða. Að minnsta kosti 10 af aðmírálunum hafa í kjölfarið verið sakaðir um að hafa brotið gegn öryggi ríkisins og minnir þetta á ásakanir þær sem voru settar fram á hendur mörgum í kjölfar valdaránstilraunarinnar 2016. Búið er að sleppa aðmírálunum úr haldi en þeir mega ekki yfirgefa heimabæi sína eða fara til útlanda.
Istanbúlskurðurinn verður 45 km langur og 25 metra djúpur ef af framkvæmd hans verður. Kostnaðurinn er áætlaður um 10 milljarðar dollara.