Samkvæmt frétt TV2 þá snerist eitt málið um fanga sem var látinn afklæðast fyrir framan fangaverði 200 sinnum á 18 mánuðum. Það taldi dómurinn vera brot á banni við pyntingum.
Í heildina voru það 30 fangar sem urðu fyrir barðinu á ósæmilegri hegðun fangavarða.
„Kvenfangar sögðu okur að þær hefðu verið neyddar til að fjarlægja túrtappa eða dömubindi þegar heimsóknartími var. Þær urðu að lyfta brjóstunum og opna munninn fyrir skoðun,“ sagði Hessen Jacobsen, lögmaður fanganna, í samtali við TV2.
Lögmannsfyrirtæki hans hefur tilkynnt að reiknað sé með að bótakröfur upp á milljónir króna verði lagðar fram vegna málanna.
Samkvæmt norskum reglum eiga fangar að afklæðast í áföngum áður en þeir fá heimsóknir. Þetta er gert til að fangaverðir geti fullvissað sig um að þeir séu ekki að smygla neinu og til að tryggja að þeir hafi ekki valdið sjálfum sér skaða.
Fyrrgreind mál snúast um að fangaverðirnir sýndu af sér ófagmannlega og óviðeigandi framkomu við þessar skoðanir. Margir fanganna fengu til dæmis athugasemdir frá fangavörðunum um hvernig þeir litu út naktir.
Í kjölfar dómsins hafa fangelsismálayfirvöld gefið út nýjar reglur um ferlið varðandi heimsóknir til fanga.