Þetta kemur fram í umfjöllun Sænska ríkisútvarpsins um málið en fjallað var um það í fréttaskýringaþættinum Uppdrag granskning. Með aðstoð falinna myndavéla og gps-senda tókst þáttagerðarmönnum að hafa uppi á þjófum sem taka þátt í þessari skipulögðu brotastarfsemi.
Árlega gefa Svíar hjálparsamtökum um 40.000 tonn af fatnaði. Í mörgum tilfellum setur fólk fatnaðinn í söfnunargáma hjálparsamtakanna. En fatnaðurinn skilar sér ekki allur til hjálparsamtakanna því þjófar stela mörg þúsund tonnum úr gámunum árlega áður en hjálparsamtökin ná að tæma þá.
Hjálparsamtökin Human Bridge eru þau stærstu í Svíþjóð hvað varðar söfnun á notuðum fatnaði. Samtökin eru með 2.500 söfnunargáma um allt land. Þau telja að 1.500 til 2.000 tonnum sé stolið úr þeim árlega. Samtökin kæra alltaf slíka þjófnaði og á síðasta ári voru kærurnar 350 í Stokkhólmi.
Lögreglan sagði þáttagerðarmönnum að hún viti af þessum þjófnuðum sem séu oft framdir af skipulögðum erlendum glæpasamtökum sem stundi oft einnig aðra afbrotastarfsemi. Sagði lögreglan að þessi glæpasamtök stundi oft afbrot sem vægar refsingar liggi við en á móti komi að með því að stela miklu magni fatnaðar sé hægt að verða sér úti um mikla peninga.
Þegar þáttagerðarmenn stóðu meðlim einna glæpasamtaka að þjófnaði úr gámi neitaði hann að vita hvað þeir væru að tala um og síðan hafði hann í hótunum við þáttagerðarmenn og hótaði þeim meðal annars lífláti.
Mál af þessu tagi hafa einnig komið upp í Danmörku en nýlega handtök lögreglan þar meðlimi glæpagengis sem eru grunað um að hafa stolið 40 tonnum af fatnaði úr söfnunargámum.