Times of Malta skýrir frá þessu. Fram kemur að ferðamálaráðherra landsins, Clayton Bartolo, hafi á fréttamannafundi skýrt frá því að ferðamálayfirvöld fái 3,5 milljónir evra til að deila út til 35.000 ferðamanna frá og með júní.
Ákveðið kerfi verður notað til að deila peningunum á milli ferðamanna. Þeir sem bóka gistingu á fimm stjörnu hótelum í gegnum bókunarkerfi hótelanna fá 100 evrur. Þeir sem bóka gistingu á fjögurra stjörnu hótelum fá 75 evrur og þeir sem bóka á þriggja stjörnu hótelum fá 50 evrur. Bóka verður minnst þriggja nátta gistingu.
Hótelin greiða ferðamönnunum síðan sömu upphæð þannig að fólk sem bókar gistingu á fimm stjörnu hóteli fær 200 evrur.
Bartolo sagði að með þessu væri tryggt að maltnesk hótel væru samkeppnishæf þegar ferðamannaiðnaðurinn vaknar aftur til lífsins. Hann sagði jafnframt að reiknað væri með að sóttvarnaaðgerðum verði aflétt frá og með 1. júní svo ferðamenn geti komið til eyjunnar.