Hann var sendur í geðrannsókn 2015 og átti síðan þungan dóm yfir höfði sér vegna ránstilraunarinnar. Hann ákvað því að þykjast vera frekar illa gefinn þegar hann fór í geðrannsókn. „Ég fékk að vita að það væri nánast útilokað að svindla en það get ég ekki tekið undir,“ hefur Danska ríkisútvarpið eftir honum. Hann vonaðist til að verða dæmdur til að fara í meðferð og sleppa við fangelsi vegna greindarskorts.
„Ég rakaði mig ekki mánuðum saman, fór ekki í klippingu, var í gömlum fötum og í sandölum þegar ég mætti. Ég gerði þetta öfgakennt,“ sagði hann um geðrannsóknina. Þar bandaði hann ímynduðum flugum frá sér og þegar hann átti að muna eftir fimm tölum nefndi hann aðeins tvær.
Allt gekk eftir áætlun og greindarvísitala hans var metin 58 en eðlileg greindarvísitala er um 100. Hann var því metinn „vægt andlega þroskaheftur“.
En þá kom babb í bátinn því í staðinn fyrir að vera dæmdur í meðferð var hann dæmdur til ótímabundinnar vistunar á stofnun fyrir mikið andlega fatlað fólk. „Þetta var mjög, mjög heimskulegt. Þetta er örugglega það heimskulegasta sem ég hef nokkru sinni gert,“ sagði hann.
Í fyrstu var hann vistaður á stofnun í Holstebro en virti ekki reglur um útivistarleyfi og var því fluttur til Kofoedsminde á Lálandi en þar eina öryggisstofnunin fyrir þroskahefta afbrotamenn. „Það fyrsta sem ég sá var stór maður í ballerínupilsi. Ég hugsaði, hvað er ég búinn að koma mér í?“ sagði hann.
Starfsfólk fór að efast um að hann væri þroskaheftur og þegar ný rannsókn var gerð 2016 var niðurstaðan að hann væri ekki þroskaheftur. Hann glímir þó við margvísleg vandamál, meðal annars hvað varðar talmál og greind hans er metin mismunandi eftir sviðum. Hann er góður í höndunum og getur tekist á við ýmislegt í höndum og tengdu stærðfræði en ef hann á að segja eitthvað um óþekkt orð kemst hann í vanda.
En þessi rannsókn breytti engu um stöðu hans því það er aðeins dómstóll sem getur breytt dómum sem hafa verið kveðnir upp og ekki er heimild fyrir að senda fólk í nýja geðrannsókn nema það hafi framið afbrot á nýjan leik. Þetta leysti Mikael með því að stela tveimur módelskipum. Í október 2019 ákvað Vestri-Landsréttur að hann skyldi fara í geðrannsókn vegna þess máls og niðurstaðan lá fyrir á síðasta ári. „Ekki þroskaheftur,“ var hún.
Vestri-Landsréttur tók mál hans fyrir nýlega og felldi fyrri dóminn úr gildi og er Mikael því frjáls maður í dag eftir sex ára dvöl á stofnun fyrir þroskahefta.