fbpx
Föstudagur 08.nóvember 2024
Pressan

Slóvakar efast um gæði Sputnik V bóluefnisins – Rússar brjálaðir og heimta að fá bóluefnið aftur

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 12. apríl 2021 08:00

Rússneskur vísindamaður með Sputnik V bóluefnið. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega neyddist forsætisráðherra Slóvakíu til að segja af sér vegna deilna um rússneska Sputnik V bóluefnið gegn kórónuveirunni. En óhætt er að segja að enn sé mikil ólga í kringum bóluefnið og málum tengdu því langt frá því að vera lokið.

Á fimmtudaginn skýrði Slóvakíska lyfjastofnunin frá því að þeir skammtar af Sputnik V sem landið hefur fengið frá Rússlandi séu öðruvísi uppbyggðir en þeir skammtar sem alþjóðlegir sérfræðingar höfðu rannsakað og stimplað sem fullnægjandi bóluefni. Lyfjastofnunin segir einnig að skammtarnir séu öðruvísi en þeir sem Evrópska lyfjastofnunin, EMA, er nú að rannsaka.

Þessi tilkynning hleypti strax illu blóði í talsmenn Russian Direct Investment Fund, sem sér um sölu og dreifingu bóluefnisins utan Rússlands, og sökuðu þeir yfirvöld í Slóvakíu um að dreifa „röngum upplýsingum“ og lygafréttum“. „Allir skammtar af Sputnik V eru af sömu gæðum og fara í gegnum strangt gæðaeftirlit hjá Gamaleya Institute (sem þróaði bóluefnið, innsk. blaðamanns),“ skrifaði Russian Direct Investment Fund á Twitter. Einnig kom fram að Slóvakar hafi verið beðnir um að skila bóluefninu svo önnur lönd geti fengið það.

Sputnik V er pólitískt hitamál víða í Evrópu en margir vilja að Evrópuríki kaupi bóluefnið af Rússum en aðrir eru á móti því og segja að ekki sé hægt að treysta þeim og að þeir noti bóluefnið í pólitískum tilgangi. Þetta mál kemur því upp á mjög slæmum tíma fyrir tilraunir Rússa við að dreifa bóluefninu sem víðast.

EMA hóf í byrjun mars forskoðun á Sputnik V en slík skoðun getur síðar leitt til þess að mælt verði við því við framkvæmdastjórn ESB að bóluefnið verði samþykkt til notkunar. Ekki er reiknað með niðurstöðu í þessari forskoðun fyrr en í maí. Þetta hefur orðið til þess að nokkur aðildarríki sambandsins hafa hafið viðræður um kaup á bóluefninu, þar á meðal hafa Þjóðverjar og Frakkar rætt við Vladimír Pútín, Rússlandsforseta, um samstarf á sviði bóluefna. Tékkar og Króatar hafa einnig sýnt bóluefninu mikinn áhuga. Rússnesk yfirvöld hafa einnig skýrt frá því að þau hafi nú þegar samið við fyrirtæki á Ítalíu, Spáni, Frakklandi og Þýskalandi um að framleiða bóluefnið.

En víkjum aftur að Slóvakíu sem fékk Sputnik V í byrjun mars. Áður var Ungverjaland eina ESB-ríkið sem hafði fengið bóluefnið. Vegna skorts á gögnum frá Rússlandi um bóluefnið hefur það ekki enn verið tekið í notkun í Slóvakíu að sögn Euobserver. Eins og áður kom fram þá segir lyfjastofnun landsins að skammtarnir séu ekki eins og þeir sem vísindamenn höfðu áður rannsakað og fjallað um í rannsókn sem var birt í vísindaritinu The Lancet í febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fíkniefnasalar gengu beint í gildru „sérfræðinga í dularklæðnaði“

Fíkniefnasalar gengu beint í gildru „sérfræðinga í dularklæðnaði“
Pressan
Í gær

Hakkarahópurinn Anonymous fer mikinn eftir að Trump var kjörinn – „Hann getur núna gert það sem honum sýnist“

Hakkarahópurinn Anonymous fer mikinn eftir að Trump var kjörinn – „Hann getur núna gert það sem honum sýnist“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Galnasta samsæriskenning næturinnar? – Halda því fram að konan með Trump sé ekki Melania

Galnasta samsæriskenning næturinnar? – Halda því fram að konan með Trump sé ekki Melania
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sprengjuhótunum rigndi yfir kjörstaði í sveifluríkjum – Taldar eiga rætur að rekja til Rússlands

Sprengjuhótunum rigndi yfir kjörstaði í sveifluríkjum – Taldar eiga rætur að rekja til Rússlands
Pressan
Fyrir 3 dögum

Villisvín skotið eftir að það beit mann á járnbrautarstöð

Villisvín skotið eftir að það beit mann á járnbrautarstöð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Snarræði unglingsstúlku varð kynferðisbrotamanni að falli

Snarræði unglingsstúlku varð kynferðisbrotamanni að falli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vegfarendur töldu að um hrekkjavökuskreytingu væri að ræða – Sannleikurinn reyndist mun skelfilegri

Vegfarendur töldu að um hrekkjavökuskreytingu væri að ræða – Sannleikurinn reyndist mun skelfilegri
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump gáttaður á auglýsingum sem er beint til kvenna – „Hefurðu heyrt annað eins?“

Trump gáttaður á auglýsingum sem er beint til kvenna – „Hefurðu heyrt annað eins?“