Le Parisien segir að þremenningarnir, sem eru frá Póllandi, hafi viðurkennt að tilheyra skipulögðum alþjóðlegum glæpasamtökum sem sérhæfa sig í að stela Lego. Fólkið bjó á hóteli í París og ók um á Audi. Það fór í leikfangaverslanir til að stela þessum eftirsóttu leikföngum sem voru síðan seld í Póllandi.
Franska lögreglan segist vera kominn nokkuð áleiðis við að leysa glæpahópinn upp en varar verslanir og almenning við hvað varðar kaup og sölu á Lego. „Það eru ekki bara börn í Legosamfélaginu, það eru margir fullorðnir sem byggja úr kubbum,“ er haft eftir lögreglumanni. Hann sagði einnig að þjófar hafi brotist inn á heimili fólks til að stela Lego. Eitt dæmi um slíkt er frá Svíþjóð en í janúar var brotist inn hjá Kent Larsson og Legosafni hans stolið en verðmæti þess var sem nemur um 600.000 íslenskum krónum að sögn Sænska ríkisútvarpsins.
En Legoþjófarnir í Frakklandi eru ekki þeir einu sem hafa stundað þessa iðju síðustu árin. Mörg dæmi er um slíka þjófa frá Bandaríkjunum, Kanada, Bretland, Ástralíu og fleiri löndum. Í mars var maður handtekinn í Oregon í Bandaríkjunum grunaður um að hafa stolið Lego að andvirði sem nemur um einni milljón íslenskra króna. Oregon Live skýrir frá þessu. BBC segir að síðasta sumar hafi Lego að andvirði sem nemur um 74 milljónum íslenskra króna verið stolið úr lagerhúsnæði í Huddersfield á Englandi.
Lego heillar þjófa því það er dýrt og það er auðvelt að selja það á internetinu. „Það er svartur markaður fyrir allt, sérstaklega verðmæta hluti. Lego er „heitt“ því það er vinsælt og dýrt. Það er nánast útilokað að rekja það, það er ekki með raðnúmer, og auðvelt að selja,“ hefur Vice eftir Peter Simpson hjá lögreglunni í Portland í Bandaríkjunum.
Verðmætustu Legosettin eru í óopnuðum umbúðum en fyrir sum þeirra fást ótrúlegar upphæðir. Ástæðan er að Lego framleiðir settin bara í ákveðinn tíma og hættir síðan framleiðslu þeirra algjörlega. Það eykur verðmæti þeirra í augum safnara.