Þetta er hornsteinninn í stefnu ríkisstjórnar jafnaðarmanna hvað varðar málefni hælisleitenda. Fram að þessu hafa engin lönd lýst sig reiðubúin til að hýsa hælisleitendur fyrir Danmörku en nú eru segja stjórnvöld í Rúanda að þau séu jákvæð í garð hugmynda þar um. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu. Fram kemur að blaðið hafi leitað svara hjá sendiráðum nokkurra ríkja um þetta og hafi þau öll svarað nei nema sendiráð Rúanda.
Þar fengust þau svör að Rúanda sé nú þegar með aðstöðu til að hýsa hælisleitendur og að landið meti samstarfið við Dani á þessu sviði mikils og sé opið fyrir nýju samstarfi og hugmyndum sem geta leitt til þess að hægt sé að bjóða hælisleitendum upp á viðeigandi aðstöðu.
Löndin vinna nú þegar saman á þessu sviði og hafa Danir styrkt Rúanda um sem svarar til um 450 milljóna íslenskra króna fyrir að taka á móti flóttamönnum sem sitja fastir í Líbíu. Danir tóku á síðasta ári á móti 200 flóttamönnum frá Rúanda. Mattias Tesfaye, ráðherra útlendingamála, hefur hrósað Rúanda fyrir að vera „framsækið“ land sem gegni „ótrúlega mikilvægu hlutverki“.
Mannréttindasamtök hafa hins vegar bent á umfangsmikil vandamál í Rúanda, þar sem pólitísk skoðanakúgun sé stunduð, landið fékk aðeins 21 stig af 100 mögulegum í síðustu samantekt Freedom House á frelsi í löndum heims.