Sænska ríkisútvarpið skýrir frá þessu. Fram kemur að konan hafi sagt manninum að hún ætlaði í viku frí í Tyrklandi með son þeirra. En „fríið“ var ekki frí og sex ár liðu þar til mæðginin sneru aftur til Svíþjóðar. Barnsfaðir konunnar sagði að hún hafi verið farin að sýna merki þess að hún styddi Íslamska ríkið áður en hún fór til Sýrlands.
Lýst var eftir konunni á alþjóðavettvangi 2014 og handtökuskipun gefin út á hendur henni. Í nóvember á síðasta ári var hún handtekin á Arlandaflugvellinum í Stokkhólmi þegar hún kom heim eftir sex ára dvöl á yfirráðasvæðum Íslamska ríkisins og í al-Hol og al-Roj fangabúðunum sem Kúrdar stýra. Sonur hennar kom heim með henni og tvö börn að auki sem hún eignaðist í Sýrlandi. Syninum var strax komið í umsjá föður síns.
Fyrir dómi sagði konan að hún hefði aðeins ætlað í tímabundna heimsókn til Sýrlands en hefði verið tekin til fanga af Íslamska ríkinu og hefði því ekki getað komist í burtu. „Ef það eru vopnaðir verðir fyrir framan húsið þitt sem segja að þú megir ekki fara neitt þá ferð þú ekki neitt,“ sagði Lars Kruse, verjandi konunnar fyrir dómi. Hann hélt því fram að konan hefði ekki stutt Íslamska ríkið, hún hefði aðeins haft áhuga á „landinu“. En dómarinn féllst ekki á þessar útskýringar, meðal annars vegna þess að konan hafði dreift áróðri íslamskra öfgamanna á Facebooksíðu sinni. Hún er einnig grunuð um stríðsglæpi á meðan hún dvaldi í Sýrlandi.