Þetta virðist hafa orðið til þess að margir vilja ekki láta bólusetja sig með bóluefninu frá AstraZeneca. Frakkar ákváðu nýlega að fólk eldra en 65 ára verði bólusett með bóluefninu sem er breyting frá því áður því ekki var talið að efnið veitti eldra fólki nægilega góða vernd. En tölur frá Bretlandi, þar sem bóluefnið hefur verið mikið notað, sýna að það veitir eldra fólki góða vernd gegn veirunni.
Mörgum, sem hefur verið boðið bóluefnið frá AstraZeneca, finnst sem þeim hafi verið boðið annars flokks bóluefni og vilja ekki þiggja það. Það gerðist til dæmis í Berlín í síðustu viku þegar lögreglunni í borginni voru boðnir 24.000 skammtar af ónotuðu bóluefni frá AstraZeneca. Þrátt fyrir að lögreglan hefði lengi kallað eftir bóluefnum fyrir lögreglumenn þá var þessu boði ekki tekið fagnandi. „Þar sem enginn annar vill bóluefnið frá AstraZeneca þá segja þeir skyndilega að við getum fengið það. Það er skiljanlegt að mörgum starfsbræðra minna finnist þeir sviknir. Sumir segjast ætla að láta bólusetja sig með því strax en aðrir eru ekki vissir í sinni sök,“ sagði Benjamin Jendro, talsmaður Berlínarlögreglunnar.
The Guardian segir að í Duisburg hafi þurft að aflýsa 50 til 70% af fyrirhuguðum bólusetningum því fólk vilji ekki bóluefnið frá AstraZeneca. Margir Þjóðverjar vilja helst fá bóluefnið frá Pfizer/BioNTech en það var þróað í Þýskalandi.
„Persónulega hef ég ekki mikla samúð með þeim sem vilja ekki nota ákveðin bóluefni. Þetta er vandamál ríku landanna þegar maður hugsar um alla þá sem bíða eftir bólusetningu eða um þá sem búa í löndum sem fá kannski ekki neitt bóluefni á þessu ári,“ sagði Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, að sögn New York Times.
Talsmenn Robert Koch stofnunarinnar í Þýskalandi segja að tveimur vikum eftir að Þjóðverjar fengu 1,45 milljónir skammta af bóluefninu frá AstraZeneca hafi aðeins verið búið að nota tæplega 271.000 skammta.
Þjóðverjar glíma einnig við vantrú fólks á bóluefnin almennt, óháð frá hvaða framleiðanda þau eru. Í nýrri könnun kom fram að þriðjungir vill ekki láta bólusetja sig gegn veirunni, óháð því hvaða bóluefni eru í boði.
Frakkar glíma við sama vanda og Þjóðverjar. Þegar blaðamenn spurðu Emmanuel Macron, forseta, hvort hann telji bóluefnið frá AstraZeneca vera öruggt sagði hann að hann myndi sjálfur láta bólusetja sig með því.