GPS-sendi var komið fyrir á úlfinum til að yfirvöld gætu fylgst með ferðum hans og högum. Með þessu sást að hann fór frá Oregon til Mono County í Sierra Nevada fjallgarðinum í Kaliforníu.
Umhverfisverndarinnar vonast til að OR-93 geti lagt sitt af mörkum til að úlfar nái fótfestu í Sierra Nevada. Nú er tæplega tugur gráúlfa í Kaliforníu en tegundinni var útrýmt í ríkinu á tuttugustu öldinni með aðgerðum yfirvalda sem miðuðu að því að vernda bústofna.
The Guardian hefur eftir Amaroq Weiss, úlfasérfræðingi hjá Center for Biological Diversity, að það sé mikið gleðiefni að OR-93 hafi haldið til Sierra Nevada því sérfræðingar hafi lengi sagt að þar sé kjörlendi fyrir úlfa.
En ekki eru allir sáttir við að úlfar dreifi úr sér og óttast að þeir muni leggjast á búfé og hugsanlega fólk. Á síðustu vikum hafa dráp á úlfum færst í aukana víða í Bandaríkjunum eftir að stjórn Donald Trump felldi úr gildi þá vernd sem gráúlfar nutu sem tegund í útrýmingarhættu.
Í Wisconsin ákváðu yfirvöld að veiða mætti 119 úlfa frá mánudegi til miðvikudags í síðustu viku en þegar upp var staðið höfðu 216 verið drepnir.