New York Times segir að Lara Trump, sem er gift Eric syni Donald Trump, hafi í hyggju að vera í áberandi hlutverki í næstu forsetakosningum. Fram að þeim ætlar hún þó að nýta tímann í annað sem má telja skref í átt að stjórnmálaferli en hún hefur verið ráðin til Fox News sem hefur löngum verið uppáhaldssjónvarpsstöð forsetans fyrrverandi.
Lara verður sérfræðingur hjá stöðinni og á að vinna við stjórnmálaskýringar og leyfa áhorfendum að heyra afstöðu hennar til ýmissa pólitískra málefna. „Ég er svo ánægð með að verða hluti af Fox-fjölskyldunni,“ sagði hún um nýja starfið.
Hún er ekki alveg ókunnug Fox News því hún var oft notuð í pólitísku samhengi af stöðinni, sem er hægrisinnuð, í tengslum við margvísleg mál.
Fox News hefur lengi verið í uppáhaldi hjá Trump-fjölskyldunni enda mikill samhljómur með fréttaflutningi stöðvarinnar og skoðunum fjölskyldunnar. Donald Trump taldi stöðina þó svíkja sig í forsetakosningunum á síðasta ári og var ansi ósáttur við hana. Þetta varð til þess að stöðin missti töluvert áhorf. En vináttan hefur styrkst á nýjan leik og nú er Lara Trump sem sagt orðin starfsmaður stöðvarinnar. Hún var meðal ráðgjafa Donald Trump í kosningabaráttunni á síðasta ári og hefur því verið velt upp að hún hyggist jafnvel sækjast eftir öldungadeildarsæti fyrir hönd Norður-Karólínu á næsta ári.