CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að Dye sé grunaður um að hafa beitt Evelyn Kay Day, 29 ára, kynferðislegu ofbeldi og síðan kyrkt hana í nóvember 1979.
Dye er nú í haldi í fangelsi í Wichita í Kansas en bíður þess að verða framseldur til Colorado.
Fram kemur í umfjöllun CNN að Dye hafi verið yfirheyrðu 22. mars og hafi þá neitað að vita nokkuð um morðið eða hver Day var. Hún starfaði á næturvöktum í tilraunastofu í skóla í Greeley. Síðast sást til hennar á lífi klukkan 22 þann 26. nóvember 1979. Þegar hún hafði ekki skilað sér heim næsta dag tilkynnti eiginmaður hennar, Stanley Charles Day, um hvarf hennar. Samstarfsfólk hennar fann bíl hennar síðdegis 27. nóvember og var lík hennar í aftursætinu. Hún hafði verið kyrkt með beltinu úr frakka hennar.
Enginn var handtekinn vegna málsins á sínum tíma en nokkrir voru yfirheyrði og sönnunargagna var aflað. Málið var tekið til rannsóknar á nýjan leik á síðasta ári í þeirri von að hægt yrði að hafa uppi á morðingjanum með nútímalegum rannsóknaraðferðum í erfðafræði. Þegar erfðaefni, sem fannst á líkinu var borið saman við upplýsingar í ýmsum gagnagrunnum lögreglunnar og rannsóknarstofa gaf það svörun við erfðaefni Dye. Erfðaefni úr honum fannst í leggöngum Day, undir nöglum hennar og á frakkaermi.
Rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós að Dye var nemandi í skólanum, sem Day starfaði í, þegar hún var myrt.