Saksóknarar segja að í símtali Lannon til ættingja síns hafi hann játað að hafa myrt 16 manns og lýsti yfir iðrun vegna morðanna. Sky News skýrir frá þessu.
Lannon var handtekinn í St Louis þann 10. mars síðastliðinn. Saksóknari sagði fyrir dómi að Lannon hafi játað að lokkað nokkur fórnarlömb heim til sín í Nýju Mexíkó þar sem hann hafi myrt þau og sundurhlutað sum líkin.
Lík eiginkonu hans og þriggja annarra fundust í bíl sem var lagt við Albuquerque alþjóðaflugvöllinn 5. mars. Ekki liggur fyrir hvernig fólkið var myrt.
8. mars fannst lík Dabkowski.
Lögreglan leitar nú að fleiri líkum og vinnur út frá skrám um horfið fólk.