Þetta sagði hann í viðtali við Fox News í tilefni af því að fljótlega verður birt skýrsla stjórnvalda um „óþekkt fyrirbæri í lofti“. Ratcliffe sagði að í skýrslunni verði skýrt frá slíkum atburðum um allan heim, atburðum sem ekki hefur verið skýrt frá opinberlega áður. „Í hreinskilni sagt þá hafa miklu fleiri svona mál komið upp en skýrt hefur verið frá,“ sagði hann.
Hann sagði að búið væri að aflétta leynd yfir sumum þessara mála og að þegar rætt sé um mál af þessu tagi þá séu það hlutir sem flugmenn hersins hafa séð eða hafa sést á gervihnattarmyndum. Það sé erfitt að útskýra sumar hreyfingar þessara hluta og erfitt eða útilokað sé að herma eftir þeim því við búum ekki yfir tækni til þess. Hann sagði einnig að sumir þessara hluta hafi flogið á meiri hraða en hljóðið en samt sem áður hafi ekki heyrst tilheyrandi hljóð þegar hljóðmúrinn var rofinn.
Birta verður skýrsluna á næstu vikum, eða í síðasta lagi í byrjun júní. Ákvæði um þetta var sett inn í frumvarp um aðgerðir vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar sem Trump skrifaði undir áður en hann lét af embætti.
Skýrslan verður gefin út af varnarmálaráðuneytinu og leyniþjónustustofnunum.