„Það voru nokkur drukkin ungmenni í bænum, sem höfðu samkvæmt okkar upplýsingum komið til landsins á föstudaginn og farið nánast beint í bæinn og höfðu þar með ekki virt ráðleggingar yfirvalda. Við komumst að þessu þegar við fengum tilkynningu um að einn af þessum ungu mönnum lægi dauðadrukkinn á götu úti. Við urðum að aka honum á hótelið,“ hefur Jótlandspósturinn eftir Michael Boolsen, lögreglustjóra.
Í Færeyjum er gerð krafa um að fólk fari í sýnatöku, vegna kórónuveirunnar, þegar það kemur til eyjanna og að það sé í sóttkví þar til niðurstaðan liggur fyrir. Síðan er fólk beðið um að halda sig út af fyrir sig þar til það fer í nýja sýnatöku á sjötta degi eftir komuna til landsins. Er niðurstaðan úr henni er neikvæð má fólk ljúka sóttkví.
Þar sem aðeins er um ráðleggingar og beiðni til fólks að ræða gat lögreglan ekki aðhafst neitt frekar í máli ungu mannanna því þeir höfðu ekki brotið nein lög.
Á föstudaginn náðu Færeyingar þeim góða áfanga að ekkert virkt smit var á eyjunum. Þar eru engar sóttvarnaaðgerðir í gangi eins og stendur og veitingastaðir og barir mega því hafa opið.
Þrátt fyrir að ungu mennirnir hafi ekki brotið nein lög var Boolsen ekki sáttur við framferði þeirra. „Það er eitthvað mikið að þegar maður hegðar sér svona. Þessar ráðleggingar eru til að vernda samfélagið sem heild og þegar nokkrir einstaklingar haga sér svona þá stefna þeir öllu samfélaginu í smithættu,“ hefur Jótlandspósturinn eftir honum.
Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, var heldur ekki sáttur við Danina fimm. „Við höfum byggt kórónuveiruaðgerðir okkar á trausti og ráðleggingum og það hefur átt sinn þátt í að á föstudaginn komumst við niður í ekkert virkt smit. Þess vegna er það virðingarleysi að einhver komi og nýti sér þessa góðu stöðu sem við höfum hér í Færeyjum,“ sagði hann.