Það er breski heimildarmyndargerðarmaðurinn Louis Theroux sem ætlar að gera myndina. Deadline skýrir frá þessu. Theroux hitti Joe Exotic fyrir 10 árum þegar hann var að gera heimildarmyndina America‘s Most Dangerous Pets.
Nýja myndin mun byggjast á áður óbirtum upptökum frá því þeir hittust fyrir 10 árum og að auki ræðir Theroux við fólk sem hefur reynt að fá Joe Exotic lausan úr fangelsi. „Þetta er fullkomin bandarísk saga, sem gerist í Oklahoma, með persónum sem eru eiginlega of litríkar og stærri en lífið sjálft til að geta verið til í raunveruleikanum,“ segir Theroux.
Hann á mikið efni frá því að hann myndaði í dýragarði Joe Exotic fyrir 10 árum og segist hafa gleymt hversu mikið efni hann á.
Heimildarmyndin verður um 90 mínútna löng og það er BBC sem mun framleiða hana.