Kafbáturinn er 3 metrar á breidd og er úr fíbergleri og krossviðarplötum. Þrjú kýraugu eru á annarri hlið hans. Tvær 200 hestafla vélar eru í honum. Rafael Perez, talsmaður lögreglunnar, sagði að báturinn hefði aldrei verið sjósettur. „Við teljum að hann geti borið um tvö tonn en þar sem hann hefur aldrei verið sjósettur getum við ekki sannað það,“ sagði hann.
Hann sagði lögregluna telja að nota hafi átt kafbátinn til að sigla langt út á haf þar sem hann myndi hitta á „móðurskip“ sem væri með fíkniefni um borð og taka við því og flytja í land. Aðallega kókaín.
Kafbáturinn líkist einna helst ísjaka og sagði talsmaður lögreglunnar að það þýði að hann færi nær allur á kaf, þó ekki efsti hlutinn. Þetta geri að verkum að aðeins lítill hluti hans stæði upp úr sjó og sæist frá öðrum skipum og bátum eða úr lofti.
Svipaðir kafbátar hafa að undanförnu uppgötvast í Atlantshafi, aðallega undan ströndum Suður-Ameríku og Mið-ameríku þaðan sem kókaín ef sent til annarra áfangastaða. Þeir kafbátar eru svipað uppbyggðir þannig að aðeins efsti hluti þeirra stendur upp úr og það er hægt að láta þá kafa alveg.