Hann er talinn einn hættulegasti maðurinn sem hefur verið á flótta undan armi ítölsku réttvísinnar. Hann var handtekinn á Sant Gervasi markaðnum í Barcelona eftir að fylgst hafði verið með honum í tengslum við eftirlit með öðrum manni úr sömu mafíu.
Maðurinn hafði verið á flótta í nokkur ár og er eftirlýstur á Ítalíu þar sem hann hafði verið dæmdur í fangelsi að sér fjarstöddum.
Spænska lögreglan komst á slóð hans eftir ábendingu frá frönsku lögreglunni. Hún naut síðan aðstoðar ítölsku lögreglunnar við að hafa uppi á honum. Í nóvember var maðurinn, sem er skráður til heimilis í Þýskalandi, dæmdur í 20 ára fangelsi á Ítalíu.