BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að þegar fyrstu gámarnir með farminum komu til Kína hafi tvær grímur runnið á fólk því enginn kopar var í þeim, bara steinar sem búið var að mála. Allt hafði þetta sloppið í gegn þrátt fyrir að miklar öryggisráðstafanir hefðu verið gerðar og farmurinn skoðaður nokkrum sinnum.
Gengið var frá kaupsamningi á 10.000 tonnum af kopar síðasta sumar og átti að afhenda hann í Kína. Um 6.000 tonn voru send af stað í rúmlega 300 gámum. Átta skip fluttu þá. En áður en ferðalagið hófst í höfn nærri Istanbúl í Tyrklandi var koparnum skipt út fyrir steina sem var búið að mála þannig að þeir líktust kopar.
Það var tyrkneska fyrirtækið Bietsan Bakir sem seldi koparinn.
Tyrkneska lögreglan hefur handtekið fjölda fólks vegna málsins en talið er að um vel skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða.
Talið er að kopar hafi í raun verið settur í gámana sem voru í fyrstu sendingunni og síðan skoðuðu fulltrúar öryggisfyrirtækis innihald þeirra og innsigluðu. Þessi innsigli voru síðan rofin og skipt um innihald í gámunum og fölsuð innsigli sett á í staðinn. Þegar skipin voru komin á haf út greiddi Mercuria 36 milljónir dollara, sem svarar til um 4,6 milljarða íslenskra króna í fimm greiðslum.
Ekki komst upp um svikin fyrr en fyrstu skipin komu til hafnar í Lianyungang nokkrum vikum síðar.