fbpx
Þriðjudagur 05.nóvember 2024
Pressan

Myrtur fyrir 28 árum – Stóllinn hans stendur enn við matarborðið um jólin

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 10. mars 2021 05:12

James Bulger. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að tæp 30 ár séu liðin síðan James Bulger var numinn á brott og myrtur á hrottalegan hátt hefur fjölskylda hans langt frá því gleymt honum. Móðir hans og bræður minnast hans daglega og berjast við sorgina og söknuðinn. Hann var aðeins tveggja ára þegar hann var myrtur.

„Við erum með aukastól við matarborðið um jólin, hann hefur alltaf verið auður. Móður minni líkar vel að hugsa um James – ekki eins og hann sitji þarna – heldur að hann sé hjá okkur þegar við borðum jólamatinn,“ sagði Michael, 27 ára, bróðir James í nýjum sjónvarpsþætti um málið. Auk hans koma hálfbræður hans, Thomas 22 ára og Leon 21 árs, fram í þættinum sem heitir Lost BoyThe Killing of James BulgerThe Mirror skýrir frá þessu.

Málið skók heimsfréttirnar í febrúar 1993 þegar tveir 10 ára drengir námu James á brott þegar hann var með móður sinni í stórverslun í Liverpool. Síðan kom í ljós að þeir höfðu misþyrmt honum hrottalega áður en þeir myrtu hann. Limlest lík hans fannst nokkrum dögum síðar í nokkurra kílómetra fjarlægð frá stórversluninni.

James Bulger fyrir miðju og morðingjar hans til vinstri og hægri.

 

 

 

 

 

Í nóvember, sama ár, voru Jon Venables og Robert Thompson fundnir sekir um að hafa myrt James og voru dæmdir til vistunar á viðeigandi stofnun en þeir voru á barnsaldri. Þar voru þeir allt til 2001 þegar náðunarnefnd mælti með að þeir fengju reynslulausn en yrðu alltaf undir eftirliti.

Bræður James koma fram í þættinum og segja frá hvernig það var að alast upp í fjölskyldu sem glímdi við svona mikla sorg. Foreldrar þeirra skildu 1993 en Michael fæddist níu mánuðum eftir morðið. „Það er ekki undarlegt að vera bróðir James. Við ólumst upp vitandi að hann var þarna, hvernig hann var, karakterinn hans. Heima hjá okkur höfum við talað mikið um James. Móðir mín hefur sagt sögur af honum. Hann hefur alltaf verið manneskja sem við vildum vita meira um og við vildum að væri til staðar frekar en að hann væri í bakgrunninum,“ sagði Michael.

Hvað varðar dauða James sagði Leon: „Ég hef enn ekki alveg skilið hvað gerðist og ég vil eiginlega ekki vita um smáatriðin.“

Bræðurnir lýsa því einnig hversu mikið móðir þeirra, Denise Fergus, verndaði þá og ætti þeirra þegar þeir voru börn og að hún hafi næstum aldrei sleppt augunum af þeim. Hún og faðir James skildu nokkrum mánuðum eftir morðið. Denise eignaðist Michael níu mánuðum eftir morðið og síðar Thomas og Leon með öðrum manni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Málið sem Pútín hélt að hann gæti þagað í hel

Málið sem Pútín hélt að hann gæti þagað í hel
Pressan
Fyrir 2 dögum

Risastór helíumauðlind í Minnesota gæti leyst skortinn í Bandaríkjunum

Risastór helíumauðlind í Minnesota gæti leyst skortinn í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sýndu klám á risaskjá í kirkjunni þegar grunnskólabörn voru í heimsókn

Sýndu klám á risaskjá í kirkjunni þegar grunnskólabörn voru í heimsókn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varpa ljósi á nýju Harry Potter þáttaröðina – „Það gengur mjög vel!“

Varpa ljósi á nýju Harry Potter þáttaröðina – „Það gengur mjög vel!“