Glæpamenn hafa sent eldra fólki og fólki, sem á undir högg að sækja í samfélaginu, skilaboð um að það sé fremst í bólusetningaröðinni. Skilaboðin líta að sögn mjög sannfærandi út, með merki breska heilbrigðiskerfisins, NHS, og hluti af skilaboðunum er tekin beint af heimasíðu NHS. Ef fólk ýtir á hlekkinn, sem fylgir skilaboðunum, endar það inni á heimasíðu þar sem boðið er upp á bókanir og lítur þetta allt vel út.
En auðvitað er ekki allt eins og það á að vera því fólk er beðið um bankaupplýsingar og stundum er það beðið um að greiða ákveðna upphæð til að fá bóluefnið. Í öðrum tilvikum hafa svikahrappar hringt í fólk, veitt persónulegar upplýsingar upp úr því og selt þær áfram til annarra glæpamanna sem hafa tæmt bankareikninga þess eða gert stórinnkaup í netverslunum.
Eitt mál, sem skýrt hefur verið frá, kom upp í Lundúnum þar sem ungur maður kom heim til 92 ára konu. Hann sprautaði hana með því sem hann sagði vera bóluefni gegn kórónuveirunni og krafði hana um 160 pund fyrir það. Hann sagði henni að hún myndi síðan fá upphæðina endurgreidda frá yfirvöldum.
Yfirvöld segja að umfang svikastarfsemi af þessu tagi sé í raun frekar lítið en fari vaxandi og óttast að það verið orðið mjög mikið í vor.