TV2 skýrir frá þessu. Haft er eftir Peter Reeslev, forstjóra sæðisbankans Cryos International, að þetta séu góð tíðindi fyrir þá sem þurfa aðstoð við barneignir. „Nú þarf fólk ekki að vera óöruggt vegna þess. Stofurnar, sem við seljum sæði til, þurftu að fá að vita að veiran smitist ekki með sæði,“ sagði hann.
„Þegar heimsfaraldurinn skall á vissi enginn hvernig veiran barst á milli. Af þeim sökum var ljóst að það var á okkar ábyrgð að kanna hvort hún smitast með sæði því við tökum við sæði frá körlum,“ sagði hann einnig.
Rannsóknin var gerð í útibúi Cryos í Flórída í Bandaríkjunum og hefur hlotið samþykki Western Institutional Review Board. Sæði karla var rannsakað og PCR-próf gert á því sæði, sem karlar sem höfðu verið smitaðir af kórónuveirunni, afhentu sæðisbankanum. Meðalaldur karlanna var 32 ár.
„Með niðurstöðum nýju rannsóknarinnar finnst okkur að við getum verið örugg um að engin hætta er á að kórónuveiran smitist með sæði í tengslum við frjósemisaðgerðir,“ sagði Reeslev.
Önnur rannsókn sýndi fram á að kórónuveiran getur borist í kynfæri karla og dregið úr gæðum sæðis en ekki er vitað hvort hún hefur áhrif á frjósemi þeirra.