Eins og sést hér fyrir neðan þá hafði stór könguló gert sig heimakomna á ofninum og með henni heill her af afkvæmum hennar. Um Huntsman könguló er að ræða en þær verða ansi stórar, meira að segja á ástralskan mælikvarða og eru þarlendir nú ýmsu vanir þegar kemur að stærð skordýra.
Moore skýrði frá þessu og birti myndir af herlegheitunum á Facebooksíðunni Australian Native Animals. Miðað við viðbrögð lesenda þá er fleirum en henni brugðið yfir þessu.