Japönsk stjórnvöld skrifuðu í janúar undir samning við Pfizer um kaup á 144 milljónum skammta af bóluefni fyrirtækisins. Það dugir til að bólusetja 72 milljónir landsmanna en 126 milljónir búa í landinu. Bólusetningar eiga að hefjast í dag.
Í hverju lyfjaglasi frá Pfizer eru sex skammtar af bóluefni en það þarf sérstaka tegund sprautunála til að ná sjötta og síðasta skammtinum úr glösunum. Með venjulegum nálum er aðeins hægt að ná fimm skömmtum.
Japanir eiga nóg af venjulegum nálum á lager, höfðu keypt mikið af þeim til að vera undir bólusetningarnar búnir. En þeim gengur illa að komast yfir hinar nálarnar því framleiðendur þeirra eiga i vanda með að anna eftirspurn. „Við erum enn að reyna að tryggja okkur þessar sérstöku nálar,“ sagði Katsunobu Kato, heilbrigðisráðherra, í gær. Í síðustu viku vildi hann ekki svara spurningu um hvort þetta gæti orðið til að færri verði bólusettir en stefnt er að.
Hvorki talsmenn Pfizer eða japanska heilbrigðisráðuneytisins vildu svara hvort samningurinn um 144 milljónir skammta byggist á að sex skammtar séu í hverju lyfjaglasi.
Yoshihide Suga, forsætisráðherra, hefur gert það að forgangsverkefni að bólusetja landsmenn hratt áður en Ólympíuleikarnir hefjast.