Þeir skoðuðu mörg hundruð ljósmyndir á Instagram af fólki sem hefur farið og skoðað fjallagórillur í austanverðri Afríku. Niðurstaða þeirra var að flestir hafi farið svo nálægt górillunum að þeir gætu smitað þær af veirum og sjúkdómum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum. CNN skýrir frá þessu.
„Hættan á að sjúkdómar berist frá gestum í górillurnar er mikið áhyggjuefni,“ er haft eftir Gaspard Van Hamme, aðalhöfundi rannsóknarinnar, í fréttatilkynningunni. Hann sagði mikilvægt að áhersla verði lögð á að herða regluverkið í kringum heimsóknir á slóðir górilla og að reglunum verði fylgt eftir til að stofna þessum stóru öpum ekki í hættu en þeir eru í útrýmingarhættu. Talið er að 1.063 villtar fjallagórillur séu eftir í náttúrunni. Þær hafast við í þjóðgörðum í Lýðsstjórnarlýðveldinu Kongó, Úganda og Rúanda.
Vísindamennirnir skoðuðu 858 ljósmyndir sem voru birtar á Instagram frá 2013 til 2019 undir myllumerkjunum #gorillatrekking og #gorillatracking. Á 86% þeirra var fólk í innan við fjögurra metra fjarlægð frá górillunum og á 25 sáust ferðamenn snerta þær. Þetta segja vísindamennirnir að sé nægilega mikil nánd til að smita górillurnar.
„Við sáum að ferðamenn notuðu andlitsgrímur sjaldan og það eykur hættuna á að smit berist á milli fólks og górilla,“ er haft eftir Magdalena Svensson í fréttatilkynningunni.
Byrjað var að biðja ferðamenn að nota andlitsgrímur í heimsóknum til górilla áður en heimsfaraldurinn braust út sagði Svensson í samtali við CNN. „Þær eru svo skyldar okkur erfðafræðilega að þær geta smitast af flestu sem við getum smitast af, til dæmis inflúensu, Ebólu og kvefi,“ sagði hún. Hún lagði áherslu á að þar sem nú er vitað að górillur geti smitast af kórónuveirunni sé enn mikilvægara en áður að gestir noti andlitsgrímur þegar farið er á górilluslóðir.