Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Lögreglumenn fundu annan innbrotsþjófinn, Khalil Herring 19 ára, við gatnamót nærri heimili Ellis og var hann með skotsár. Bæði Herring og Ellis voru flutt á sjúkrahús. Þar lést Herring en Ellis er á batavegi.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að niðurstöður frumrannsóknar bendi til að Herring hafi verið annar innbrotsþjófanna. Lögreglan segist ekki reikna með að pilturinn verði kærður. CNN skýrir frá þessu.