Gates hefur áhyggjur af framtíðinni og segir nú að stærstu ógnirnar sem steðja að mannkyninu í framtíðinni séu loftslagsbreytingarnar og líftæknihryðjuverk. Daily Star skýrir frá þessu.
Fram kemur að Gates hafi rifjað upp það sem hann sagði 2015 í Ted Talk í samtali við Veritasium YouTube-rásina og hafi þá sagt: „Það er ekki góð tilfinning sem fylgir því í tengslum við eitthvað svona að segja: „Ég sagði ykkur þetta.““
„Gæti ég hafa verið meira sannfærandi? Það eru margar öndunarfæraveirur og öðru hvoru mun ein brjótast út. Öndunarfærasjúkdómar eru skelfilegir því þú ert enn að ganga um flugvél eða í strætó eftir að þú sýkist. Ólíkt sumum öðrum sjúkdómum, til dæmis Ebólu, þar sem þú ert eiginlega á sjúkrahúsi allan tímann, þegar veiran er mest smitandi,“ sagði hann.
Hvað varðar ógnir framtíðarinnar sagði hann að loftslagsbreytingarnar væru mikil ógn. „Árlega deyja fleiri vegna þeirra en í þessum faraldri. Lífefnahernaður. Einhver sem vill valda skaða gæti breytt veiru og það þýðir að líkurnar á slíku eru meiri en líkurnar á náttúrulegum faraldri eins og þeim sem nú geisar,“ sagði hann.
Hann sagði jafnframt að við getum ekki komið í veg fyrir faraldra framtíðarinnar en að við getum verið betur undir þá búin en undir þann sem nú geisar „þannig að dánartölurnar komist ekki nærri því sem nú er.“